BEST Reykjavík ætlar að vera með opinn fund fyrir áhugasama
Hvenær: Fimmtudaginn 2.sept, klukkan 21
Hvar: Sumarhöll (skúrinn á bílastæðinu á bak við VR-2)
Stefnt er á að kíkja niðrí bæ eftir fundinn, það er gott tilboð á hverfisbarnum, 5 carlsberg í fötu á 1000kr!
Á þessum fundi munum við kynna félagið BEST og kynna hvað er í gangi hjá okkur. Það er mjög spennandi viðburður að nálgast hjá okkur, inTRAP - International Trainers Camp 2010, þar sem um 23 erlendir nemendur koma til Íslands í tíu daga þjálfunarbúðir. BEST Reykjavík sér um uppihald hjá þeim og skemmtun. Þema partý verða á hverju einasta kvöldi þessa tíu daga, 17 - 27.sept, og allir velkomnir að vera með og kynnast "BEST Spirit"
Hérna er gamalt myndband frá LBG Barcelona um hvað er að vera BESTari:
EBEC - European BEST Engineering Competition
Sunday, 18 July 2010 23:00
Það styttist í EBEC, úrslita keppnin fyrir vinningshafa BEST verkfræðikeppna um alla Evrópu. Hún verður haldin í Cluj-Napoca í Rúmaníu eftir tæpar tvær vikur. Það verður hægt að fylgjast með allri keppninni "live" á heimasíðu þeirra. Keppt verður í tveimur greinum, hönnun (Team Design) og raunhæft verkefni (Case Study). Um 104 manns mun keppa í fjögurra manna liðum
BEST Reykjavík stefnir á að halda undankeppni fyrir NordBEC (norðurlanda verkfræðikeppnin) í haust og vonumst eftir að geta sent lið á EBEC 2011!
Aðalfundarferð BEST Reykjavík 29.maí - 30.maí 2010
Thursday, 03 June 2010 23:35
Um helgina fóru meðlimir BEST Reykjavík í aðalfundarferð í Skorradal. Dagskrá ferðarinnar var stíf þar sem planið var að horfa á Eurovision. Við lögðum því á stað um hádegi, byrjuðum á aðalfundi þar sem ný stjórn var kosin og grilluðum síðan hvalkjöt í kvöldmat. Eins gott að við keyptum líka pulsur þar sem hvalkjötið var óætt. Við náðum að vera tilbúin fyrir Eurovision og lifðum okkur inn í stigagjöfina með drykkjuleik.
Við þökkum gömlu stjórninni fyrir æðislegt ár og við getum verið stolt af því sem við afköstuðum. Smá ágrip af skólaárinu 2009-2010:
Fjáröflunar þjálfun með Andra frá Innovit í ágúst
isKIND - Þjálfunaratburður þar sem rússneskur BESTari kom og kenndi okkur mannauðstjórnun og fundarstjórnun. Endaði með því að elta kindur í réttum og íslensku gítarpartýi í byrjun september.
Í byrjun október sendum við þrjá meðlimi á JBT (Joint Board Training) til Svíþjóðar, þriggja daga þjálfunarviðburður þar sem BEST meðlimir frá norðurlöndunum koma saman.
Í lok október sendum við tvo meðlimi á RM (Royal Meeting) líka til Svíþjóðar, þetta er aðalfundur BEST á Norðurlöndunum.
Í desember fór forsetinn okkar á PM ( President Meeting) í Lviv í Ukraínu.
Á háskóladeginum í febrúar héldum við litla verkfræðiáskorun VÁ BEST, í samstarfi við verkfræðideild HÍ. Markmiðið var að búa til pappírsþyrlu og stig voru reiknuð út frá tíma í lofti og hversu nálægt skotmarki hún lenti. Tíu manns unnu Bíókort frá NOVA.
í maí fór einn meðlimur á GA (General Assembly, aðalfundur BEST) í Warsaw í Póllandi
Margt er framundan hjá BEST Reykjavík eins og inTRAP - Internationa Trainers Camp Reykjavík 2010, ReyBEC - Reykjavík BEST Engineering Competion og BEST vorkúrs.
Vornámskeið BEST 2010
Monday, 23 November 2009 22:57
Listinn yfir Vornámskeið BEST 2010 hefur verið birtur og umsóknafresturinn nálgast óðfluga! Frestur er til 13. desember. Kíkið á listann til að sjá hvað er í boði og á BEST námskeið til að fá leiðbeiningar um hvernig á að sækja um.
ATH Allir nemendur Háskóla Íslands geta sótt um þó markhópur BEST sé Verkfræði- og Raunvísindanemar. Ef einhverjar spurningar vakna sendið þá póst á
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Eins og glöggir munu taka eftir erum við í BEST Reykjavík með einn af þeim kúrsum sem boðið er uppá í vor en þó svo námsmenn við Hí geti ekki sótt um að vera formlegir þátttakendur á því námskeiði þá erum við alltaf að leita að góðu fólki sem langar að taka þátt í starfinu með okkur.
Ef þig langar að upplifa stemminguna á BEST námskeiði en hefur kannski ekki tök á að ferðast settu þig þá í samband við Berglindi, kynningarfulltrúan okkar í gegnum tölvupóst á
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
eða síma 866-3650 og segðu "Mig langar að vera með! :D"