|
Thursday, 30 August 2007 22:24 |
|
Það er mikið að gerast hjá BEST á næstu vikum og mánuðum, eins og alltaf. Hérna að neðan má sjá brot af því BESTa.
Dagana 13. - 17. september verður stjórnarþjálfun í Kaupmannahöfn fyrir þá sem hafa áhuga á að bjóða sig fram í stjórn á aðalfundinum. Frestur til að skrá sig er 5. september.
Laugardaginn 22. september er aðalfundur félagsins þar sem kosið verður í nýja stjórn og farið verður yfir síðasta BEST ár. Frestur til að bjóða sig fram í stjórn er fimtudagurinn 20. september.
Dagana 30. september - 7. október höldum við á Íslandi þjálfunarbúðir í leiðtogaþjálfun sem kallast bePROUD. Tökum við á móti 26 Evrópubúum frá 15 löndum.
Dagana 26. - 29. október verður svæðisfundur Norrænu BEST hópanna haldinn í Þrándheimi í Noregi. Hóparnir eru 10, og er þessi fundur undirbúningur fyrir forsetafund BEST.
Dagana 5. - 11. nóvember verður forsetafundur BEST, sem er annar af tveimur aðalfundum BEST. Þar hittast forsetar allra BEST hópanna, alþjóðastjórnin og allar þær nefndir sem starfa í BEST.
Eins og þið sjáið er nóg að gera og spennandi hlutir í aðsigi. Ef þið hafið einhverjar spurningar eða áhuga á að fara í eitthvað af þessum ferðum, eða hjálpa til við þjálfunarnámskeiðið hérna heima, ekki hika við að hafa samband við okkur með tölvupósti (
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
) eða nappa í okkur á göngum skólans. |
|
Saturday, 25 August 2007 22:15 |
|
BEST á Íslandi skipuleggur nú þjálfunarbúðir (e. TrainShop) í leiðtogaþjálfun sem kallast bePROUD. Þær verða haldnar dagana 30. september til 7. október og munum við taka á móti 20 þáttakendum, 4 þjálfurum og 2 aðstoðar skipuleggjendum. Krakkarnir koma frá 15 löndum Evrópu. |
|
BEST á Íslandi orðin fullgild |
|
|
|
|
Sunday, 22 April 2007 15:56 |
|
Á síðasta föstudaginn, 20. apríl 2007, varð BEST á Íslandi fullgildur meðlimur BEST samtakanna. Þetta er stór dagur fyrir okkur og eitthvað sem við höfum unnið að, hörðum höndum síðustu tvö ár. Hér fyrir neðan má sjá fréttatilkynningu sem send var frá okkur.
BEST á Íslandi fær fulla aðild að evrópsku móðursamtökunum
Á aðalfundi evrópsku BEST samtakanna í Frakklandi í dag var kosið um hvort aðildarfélag BEST í Háskóla Íslands fengi fulla aðild að samtökunum. Á aðalfundinum eiga kosningarétt tveir fulltrúar frá 29 evrópulöndum auk alþjóðstjórnar BEST. Tillaga þess efnis um að Ísland fengi fulla aðild að samtökunum var borin upp af BEST samtökum tækniháskólans í Trondheim í Noregi og var samþykkt með 62 atkvæðum gegn einu, tveir sátu hjá. Með þessu lýkur tæplega tveggja ára undirbúningi að þessum tímamótaafanga í sögu félagsins á Íslandi. Umsóknarferli BEST er töluvert flókið og eru miklar kröfur gerðar til aðildarfélaga og eru einungis örfá ný aðildarfélög í evrópskum háskólum sem hljóta inngöngu ár hvert. Sumarið 2005 stofnaði hópur verkfræði og raunvísindanema félag innan Háskóla Íslands og hóf undirbúningsvinnu við aðildarumsókn að evrópsku BEST samtökunum. Í lok sumars lauk hópurinn viðamikilli umsóknarbeiðni sem innihélt skýrslu um starfsemi Háskólans, markmið aðildarfélagsins og framtíðarsýn upp á tæplega 50 blaðsíður. Um miðjan nóvember sama ár samþykkti forsendafundur BEST umsóknarbeiðnina og fékk íslenska félagið því meðlimsstöðuna áhorfshópur (e. Observer group). Í kjölfarið hóf félagið á Íslandi formlega starfsemi sína og hefur vegur félagsins verið upp á við frá þeim tíma. Meðal annars hefur félagið staðið fyrir tveimur alþjóðlegum námskeiðum, annars vegar um vetnisframleiðslu og hins vegar um vatnsaflsvirkjanir sem nokkur hundruð evrópskir nemendur hafa sótt um að taka þátt í. Á aðalfundi BEST í Belgíu árið 2006 var samþykkt að íslenska aðildarfélagið yrði uppfært í umsóknarferlinu. Nú ári seinna á aðalfundi félagsins hlaut félagið fulla aðild, að uppfylltum ströngum skilyrðum. BEST (Board of European Students of Technology) eru evrópsk samtök háskólanema í tæknigreinum. Alls eru 70 evrópskir háskólar í 30 löndum aðilar að samtökunum og ná þau til um 500.000 nemenda í Evrópu. Megintilgangur BEST er að bjóða nemendum aðildarháskólanna upp á aukreitis menntun í formi stuttra námskeiða ásamt því að gefa nemendum tækifæri á að kynnast menningu og tungumálum annarra þjóða.
|
|
Monday, 02 April 2007 15:51 |
Síðastliðið sumar komu til Íslands 15 ítalskir háskólanemar frá BEST í Napólí í heimsókn til Víðfara. Þessir hópar höfðu ákveðið að eiga svokölluð menningarskipti (e. Cultural Exchange) sem eru skipulagðar ferðir innan BEST. Í þessari fyrri heimsókn hýstum við Ítalina heima hjá okkur og í mars síðastliðnum fóru 15 hressir BESTarar utan. Tilgangur þessara ferða er að kynnast ólíku landi á sem raunsæjastan hátt. Heimagisting og sá góði andi sem ríkir innan BEST gerir þetta vel mögulegt á þeim vikutíma sem heimsóknirnar standa yfir.
Þrátt fyrir að við höfðum kynnst Ítölunum nokkuð vel í heimsókn þeirra hérna var ýmislegt sem kom okkur á óvart. Flestir urðu nokkuð skelkaðir þegar sest var í bíl í fyrsta skipti og ljós kom að umferðarreglur í Napólí væru almennt hugsaðar sem leiðbeiningar frekar en einhver lög sem skylt væri að fara eftir. Þegar leið á vikuna kom þó í ljós að öll óreiðan virkar furðu vel í umferðinni hjá Napólí búum.
Meðal þess sem var á dagskrá var heimsókn á Þjóðminjasafn i Napóli, konungshöllin í Napólí var skoðuð ásamt því að farið var í sýningarferð um fyrstu sjálfvirku silkiverksmiðju í heimi. Skipst var á þjóðlegum mat og drykk á International Evening í hlíðum Vesúvíusar og 2000 ára gömul áveitugöng voru rannsökuð ásamt fjölda annara merkilegra mannvirkja sem tengjast sögu staðarins.
Framundan er myndakvöld þar sem utanfarar munu sýna og segja öðrum BESTurum frá þessari skemmtilegu reynslu.
Þetta verkefni hefur hlotið styrk frá Evrópu Unga Fólksins og vill Víðfari-BEST á Íslandi koma á framfæri þökkum fyrir veittan stuðning.
|
|
|
<< Start < Prev 1 2 3 4 5 Next > End >>
|
|
Page 4 of 5 |