|
Kynningarvika BEST Reykjavík |
|
|
|
|
Vikuna 28. september til 2. október verðum við í BEST Reykjavík að kynna starfsemina okkar á Háskólasvæðinu.
Kynningar á göngum:
Á mánudeginum og fimmtudeginum verðum við með borð í andyri VR2 með bæklinga, smákökur og létt spjall við alvöru BESTara milli kl 10 og 13.
Opið Hús:
Fyrir þá sem vilja meiri upplýsingar og aðstoð við umsókn á kúrs geta komið á opið hús sem er þriðjudag til fimmtudags kl 13-17. BESTarar verða á staðnum og taka vel á móti ykkur.
Opinn Fundur:
Á fimmtudeginum kl 17 verður svo opinn fundur BEST Reykjavík þar sem öllum áhugasömum um hópinn er velkomið að mæta og sjá með eigin augum hvað fer fram og fá enn betri innsýn inn í félagið. |
|
Saturday, 19 September 2009 22:55 |
|
Það fer að styttast í að tilkynntir verða BEST vetrarkúrsar en þeir verða birtir hér þann 24. september kl 23:00 CEST.
Vetarkúrsarnir eiga sér stað á tímabilinu 1. desember 2009 - 8. mars 2010 en fresturinn til að sækja um þá verður 25. október 2009.
Þegar kúrsarnir verða tilkynntir þá setjum við nánari upplýsingar um þá hér á heimasíðuna ásamt því að bjóða uppá aðstoð við gerð umsókna ofl.
Fylgist því vel með á síðunni :) |
|
Vetrarstarf BEST komið á fullt skrið að loknu sumri |
|
|
|
|
Friday, 18 September 2009 22:53 |
|
Nú erum við loks öll byrjuð aftur í skólanum eftir gott sumar og starfið hérna heima komið á fullt skrið. Það er margt spennandi framundan á komandi ári og fjölbreytt verkefni verða í gangi í allan vetur fyrir þá sem vilja taka þátt.
Við byrjuðum haustið á að styrkja BEST hópinn hérna heima með námskeiðum í mannauðsstjórnun og fundarhaldi með hjálp BEST-þjálfara frá Rússlandi. Til að þjappa hópnum enn betur saman skemmtum við okkur hressilega á íslenskan máta með því að skella okkur í Réttir og enduðum kvöldið á alvöru gítarpartýi þar sem var sungið fram á nótt :) |
|
Tuesday, 11 November 2008 22:32 |
|
Frá og með 9. nóvember síðastliðnum var opnað fyrir umsóknir á Vorkúrsa BEST sem eru á tímabilinu frá 1. mars til 7. júní 2009. BEST-kúrsar eru tilvalið tækifæri til að ferðast og upplifa e-ð alveg nýtt á sem ódýrastan máta sérstaklega nú í kreppunni.
Ný tillaga var samþykkt á forsetafundinum í Bucharest og nú þurfa umsækjendur frá Íslandi ekki að borga þetta svokallaða "fee" sem er á sumum kúrsunum þannig að nú er þetta enn ódýrara fyrir ykkur. Umsóknafrestur rennur út 14. desember. Til að sjá leiðbeiningar um hvernig á að sækja um farið hér.
Ef þið hafði spurningar sendið þá línu á
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
og við svörum ykkur um hæl :) |
|
|
<< Start < Prev 1 2 3 4 5 Next > End >>
|
|
Page 2 of 5 |