Home
Vetrarkúrsar BEST komnir PDF Print E-mail
Sunday, 05 October 2008 22:30

Listinn yfir Vetrarnámskeið BEST er kominn. Umsóknarfrestur er til 22. október. Kíkið á atburði erlendis til að fá leiðbeiningar. Allir nemendur Háskóla Íslands geta sótt um. Ef einhverjar spurningar vakna sendið þá póst á This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it

 
Vetrarkúrsar BEST nálgast PDF Print E-mail
Thursday, 25 September 2008 22:29

Tilkynntur verður listi vetrarkúrsa BEST á mánudaginn næsta, þann 29. september kl 21:00 og verða þar í boði kúrsar sem eru opnir öllum nemendum HÍ. Hægt verður að sækja um frá því að þeir eru tilkynntir fram til 22. október kl 21:00. Í boði verða kúrsar í tæknitengdu efni, tómstundakúrs og verkfræðikeppnir í hinum ýmsu Evrópulöndum á tímabilinu 1. desember til 7.mars.

Hér mun listinn birtast.

Ef þið hafið einhverjar spurningar endilega sendið línu á This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it

 
Sumarnámskeið BEST 2008 PDF Print E-mail
Wednesday, 02 April 2008 22:28

Byrjað er að taka við umsóknum á BEST sumarnámskeiðin. Námskeiðin eru frábær leið til að læra eitthvað nýtt, kynnast nýju fólki hvaðanæva úr Evrópu og ferðast til nýrra og skemmtilegra staða útum alla Evrópu. Ekki láta þetta tækifæri renna þér úr greipum! Hægt er að sækja um námskeiðin með því að fara á www.bestreykjavik.com/courses

 
Opinn fundur og Aðalfundur PDF Print E-mail
Wednesday, 19 September 2007 22:25

Opinn fundur BEST
Á morgun miðvikudag verður haldinn opinn fundur þar sem allir eru velkomnir. Á fundinum verður rætt lítilega um BEST og starfsemina á komandi misserum sem og aðalfund félagsins sem haldinn verður á laugardaginn n.k. Einnig verður tekið við skráningum í félagið og útskýrt hvaða möguleikar og tækifæri opnast meðlimum BEST. Fundurinn hefst kl 20:00 og verður haldinn í stofu 257 í VR-II


Aðalfundur BEST á Íslandi
Laugardaginn 22. september verður aðalfundur BEST á Íslandi haldinn á veitingarstaðnum Horninu. Hefðbundin aðalfundarstörf hefjast klukkan 20:00, en boðið er upp á hlaðborð fyrir þá sem það vilja, á milli 18:00 og 20:00 ásamt einum drykk á 2.750,- kr. Hægt er að skrá sig á matinn í netfanginu This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it til miðnættis, fimmtudagin 20. september.

Kosningarétt og framboðsrétt til stjórnar á aðalfundinum hafa allir meðlimir BEST sem hafa greitt félagsgjald kr. 3.000,- fyrir komandi starfsár. Framboðsfrestur til stjórnar er til klukkan 23:59 fimmtudaginn 20. september.

Nánar verður sagt frá aðalfundinum á opna fundinum á morgun.

Allar nánari upplýsingar má fá með því að senda mail á This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it .

Vonumst til að sjá sem flesta.

Stjórnin

 
<< Start < Prev 1 2 3 4 5 Next > End >>

Page 3 of 5

BEST námskeið

Styrktaraðilar