Home
Opinn fundur, fimmtudaginn 2.sept klukkan 21 PDF Print E-mail

Velkomin aftur í skólann!

 

BEST Reykjavík ætlar að vera með opinn fund fyrir áhugasama

Hvenær: Fimmtudaginn 2.sept, klukkan 21

Hvar: Sumarhöll (skúrinn á bílastæðinu á bak við VR-2)

 

Stefnt er á að kíkja niðrí bæ eftir fundinn, það er gott tilboð á hverfisbarnum, 5 carlsberg í fötu á 1000kr!

 

Á þessum fundi munum við kynna félagið BEST og kynna hvað er í gangi hjá okkur. Það er mjög spennandi viðburður að nálgast hjá okkur, inTRAP - International Trainers Camp 2010, þar sem um 23 erlendir nemendur koma til Íslands í tíu daga þjálfunarbúðir. BEST Reykjavík sér um uppihald hjá þeim og skemmtun. Þema partý verða á hverju einasta kvöldi þessa tíu daga, 17 - 27.sept, og allir velkomnir að vera með og kynnast "BEST Spirit"

 

Hérna er gamalt myndband frá LBG Barcelona um hvað er að vera BESTari:

 
EBEC - European BEST Engineering Competition PDF Print E-mail
Sunday, 18 July 2010 23:00

 

Það styttist í EBEC, úrslita keppnin fyrir vinningshafa BEST verkfræðikeppna um alla Evrópu. Hún verður haldin í Cluj-Napoca í Rúmaníu eftir tæpar tvær vikur. Það verður hægt að fylgjast með allri keppninni "live" á heimasíðu þeirra. Keppt verður í tveimur greinum, hönnun (Team Design) og raunhæft verkefni (Case Study). Um 104 manns mun keppa í fjögurra manna liðum

BEST Reykjavík stefnir á að halda undankeppni fyrir NordBEC (norðurlanda verkfræðikeppnin) í haust og vonumst eftir að geta sent lið á EBEC 2011!

 
Aðalfundarferð BEST Reykjavík 29.maí - 30.maí 2010 PDF Print E-mail
Thursday, 03 June 2010 23:35

Um helgina fóru meðlimir BEST Reykjavík í aðalfundarferð í Skorradal. Dagskrá ferðarinnar var stíf þar sem planið var að horfa á Eurovision. Við lögðum því á stað um hádegi, byrjuðum á aðalfundi þar sem ný stjórn var kosin og grilluðum síðan hvalkjöt í kvöldmat. Eins gott að við keyptum líka pulsur þar sem hvalkjötið var óætt. Við náðum að vera tilbúin fyrir Eurovision og lifðum okkur inn í stigagjöfina með drykkjuleik.

Ný stjórn BEST Reykjavík:

Forseti : Sara Björk Sigurðardóttir

Ritari: Anna María Jóhannesdóttir

Gjaldkeri: Stefanía Magnúsdóttir

VP of HR: Svanlaug Elsa Steingrímsdóttir

VP of PR: Elka Halldórsdóttir

 

 

Við þökkum gömlu stjórninni fyrir æðislegt ár og við getum verið stolt af því sem við afköstuðum. Smá ágrip af skólaárinu 2009-2010:

  • Fjáröflunar þjálfun með Andra frá Innovit í ágúst
  • isKIND - Þjálfunaratburður þar sem rússneskur BESTari kom og kenndi okkur mannauðstjórnun og fundarstjórnun. Endaði með því að elta kindur í réttum og íslensku gítarpartýi í byrjun september.
  • Í byrjun október sendum við þrjá meðlimi á JBT (Joint Board Training) til Svíþjóðar, þriggja daga þjálfunarviðburður þar sem BEST meðlimir frá norðurlöndunum koma saman.
  • Í lok október sendum við tvo meðlimi á RM (Royal Meeting) líka til Svíþjóðar, þetta er aðalfundur BEST á Norðurlöndunum.
  • Í desember fór forsetinn okkar á PM ( President Meeting) í Lviv í Ukraínu.
  • Á háskóladeginum í febrúar héldum við litla verkfræðiáskorun VÁ BEST, í samstarfi við verkfræðideild HÍ. Markmiðið var að búa til pappírsþyrlu og stig voru reiknuð út frá tíma í lofti og hversu nálægt skotmarki hún lenti. Tíu manns unnu Bíókort frá NOVA.
  • Í mars héldum við vorkúrs fyrir BEST um jarðvarma, Steaming Energy from the Core of the Earth to Your Coffeemaker. Það sóttu 368 manns um, en aðeins 22 komust inn. Námskeiðið var haldíð í samstarfi við HÍ, ÍSOR, HS Orku og GEORG.
  • í maí fór einn meðlimur á GA (General Assembly, aðalfundur BEST) í Warsaw í Póllandi

Margt er framundan hjá BEST Reykjavík eins og inTRAP - Internationa Trainers Camp Reykjavík 2010, ReyBEC - Reykjavík BEST Engineering Competion og BEST vorkúrs.

 
Vornámskeið BEST 2010 PDF Print E-mail
Monday, 23 November 2009 22:57

Listinn yfir Vornámskeið BEST 2010 hefur verið birtur og umsóknafresturinn nálgast óðfluga! Frestur er til 13. desember. Kíkið á listann til að sjá hvað er í boði og á BEST námskeið til að fá leiðbeiningar um hvernig á að sækja um.

ATH Allir nemendur Háskóla Íslands geta sótt um þó markhópur BEST sé Verkfræði- og Raunvísindanemar. Ef einhverjar spurningar vakna sendið þá póst á This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it

 

Eins og glöggir munu taka eftir erum við í BEST Reykjavík með einn af þeim kúrsum sem boðið er uppá í vor en þó svo námsmenn við Hí geti ekki sótt um að vera formlegir þátttakendur á því námskeiði þá erum við alltaf að leita að góðu fólki sem langar að taka þátt í starfinu með okkur.

Ef þig langar að upplifa stemminguna á BEST námskeiði en hefur kannski ekki tök á að ferðast settu þig þá í samband við Berglindi, kynningarfulltrúan okkar í gegnum tölvupóst á This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it eða síma 866-3650 og segðu "Mig langar að vera með! :D"

Hér að lokum má sjá kynningarmyndband vorsins:

 
<< Start < Prev 1 2 3 4 5 Next > End >>

Page 1 of 5

BEST námskeið

Styrktaraðilar