Home Hvað er BEST
Hvað er BEST PDF Print E-mail

BEST - Board of European Students of Technology

  • Evrópskt nemendafélag með 85 hópa í 30 löndum, þar af einn hópur á Íslandi í Háskóla Íslands BEST Reykjavík

  • Gefur nemendum tækifæri á að ferðast um alla Evrópu, læra nýja hluti, kynnast fullt af fólki og uppgötva nýjar hliðar á sjálfum sér.
  • Býður upp á námskeið, verkfræðikeppnir og skemmtiferðir fyrir alla nemendur í samstarfsháskólum (þ.á.m. Háskóla Íslands), eina sem þú þarft að gera er að sækja um, kaupa flugmiða og vera tilbúinn fyrir ógleymanlega upplifun. Viðburðirnir, gisting og matur er innifalinn í skráningargjaldi (~ 8000 kr - 15000 kr )
  • Félag sem nemendur alls staðar frá Evrópu halda uppi með aðalstjórn, nefndum og BEST hópum sem hafa öll sín eigin hlutverk til að passa upp á gæði viðburða, þjálfun á meðlimum og viðhaldi á "BEST spirit"
  • Hver sem er getur orðið að virkum BEST meðlimi og hjálpað til með að skipuleggja viðburði, fengið þjálfun í ýmsu sem ekki er hægt að læra í skóla og eignast góða vini, eina sem þarf að gera er að koma sér í samband við BEST Reykjavík og mæta á fund.
Kort sem sýnir staðsetningu allra BEST hópana í Evrópu.