| BEST International |
|
|
|
|
BEST, Board of European Students of Technology eru samtök rekin af stúdentum, fyrir stúdenta með það markmið að kynna Evrópu fyrir Evrópubúum. Sá hluti samtakana sem sér um að samhæfa þessa 86 BEST hópa í 30 löndum kallast óformlega BEST International. BEST International skiptist í alþjóðlegar nefndir og stjórn BEST.
BEST leggur mikið upp á gæði, jákvæða upplifun og að gefa einstaklingum tækifæri til að dafna og blómstra. Nefndirnar leggja til ákveðin gæðastaðal sem BEST hópar þurfa að fylgja þegar þeir eru að skipuleggja og halda viðburði á vegum BEST ásamt þess að veita meðlimum BEST hópa þjálfun í færni sem ekki er hægt að læra í skóla og gagnast í atvinnulífinu s.s. mannauðstjórnun, fundarstjórnun, þekkingarmiðlun, markaðsfræði, fjáröflun, ræðumennska, vinna í alþjóðlegu umhverfi og verkefnastjórnun. Eitt af markmiðum BEST er að færa nemendur, fyrirtæki og háskóla saman í gegnum leik og störf.
Uppbygging BESTBEST er stjórnað af alþjóðastjórninni sem er kosin á árlegum aðalfundi BEST. Í stjórn sitja 6 manns; forseti, ritari, gjaldkeri, varaforseti fyrir ytri þjónustur, varaforseti fyrir innri aðstoð og varaforseti fyrir aðstoð við staðværa hópa. Sjá nánar: International Board Í BEST eru ýmsar nefndir sem sjá um að halda utan um starfsemi BEST. Þetta eru nefnd almannatengsla, nefnd ytri atburða, nefnd menntunar, nefnd innri þjálfunar, nefnd upplýsingatækninnar og nefnd fyrirtækjatengsla. Sjá nánar: International Teams BEST hóparnir (Local BEST Groups) eru undirstaða félagsins og sjá um að skipuleggja og kynna viðburði með því halda sýnileika félagsins í hámarki í sínu heimalandi. Hver BEST hópur er skyldugur að halda að minnsta kosti eitt námskeið á ári til að halda áfram í félaginu. Sjá nánar: Local BEST Groups Uppbygging BEST myndrænt,
|
BEST International




