Home BEST Reykjavík
BEST Reykjavík PDF Print E-mail

BEST Reykjavík er íslenskt undirfélag evrópsku samtakana BEST (Board of European Students of Technology). Tilgangur félagsins er að þróa og standa fyrir viðburðum sem auka víðsýni evrópskra tæknistúdenta, kynna þeim evrópska menningu og byggja upp hæfileika til að stunda vinnu í alþjóðlegu þekkingarsamfélagi.

 

Dæmi um verkefni BEST Reykjavík:

  • Að kynna nemum Háskóla Íslands fyrir BEST námskeiðum og verkfræðikeppnum.
  • Skipuleggja að minnsta kosti eitt BEST námskeið fyrir erlenda nema frá samstarfsskólum BEST
  • Gefa meðlimum tækifæri á að öðlast reynslu og færni í gegnum þjálfun og félagsstörf
  • Senda meðlimi út á fundi á vegum BEST s.s. GA (Aðalfundur BEST), RM (Norðurlanda svæðisfundur) o.s.frv.
  • Hafa gaman og eignast góða vini með því að skipuleggja litla skemmtiviðburði fyrir félagið

Saga BEST Reykjavík

 

BEST Reykjavík var stofnað haustið 2005 og 13. nóvember í Ljubljana í Slóveníu urðum við svokallaður áhorfshópur (e. Observer group). Sem áhorfshópur skipulögðum við Nordic BEST meeting, sem er svæðisfundur allra BEST hópanna í norður-evrópu og undirbúningur hópanna fyrir aðalfund félagsins. Einnig skipulögðum við sumarnámskeið þar sem við fengum til okkar um 20 BESTara í tvær vikur.

Strax 26. apríl 2006 í Zagreb í Króatíu urðum við svo barna-meðlimir (e. Baby member) og höfðum við þá öðlast alla þá rétti sem fullgildir BEST hópar (e. Full members) hafa, fyrir utan að kjósa um lagabreytingar á aðalfundum félagsins. Sem barna-meðlimir skipulögðum við vornámskeið um vatnsaflsvirkjanir þar sem við fengum rúmlega 20 nemendur til okkar.

20. apríl 2007 í Cluny í Frakklandi urðum við svo loksins fullgildir meðlimir eftir langt og strangt umsóknarferli.

Núna er framtíðin björt og hlökkum við til að takast á við þær áskoranir sem við tökum okkur fyrir hendi.