Home BEST námskeið
BEST Námskeið PDF Print E-mail

BEST námskeið gefur nemendum tækifæri á að læra eitthvað nýtt, kynnast erlendum fyrirtækjum, upplifa alþjóðlegt umhverfi og skemmta sér á ódýran hátt. Námskeiðin eru skipulögð af BEST hópum um alla Evrópu sem afla fjár fyrir gistingu og uppihaldi, því kosta námskeiðin nánast ekkert fyrir þátttakendur.

BEST námskeiðin eru haldin allt árið í kring en eru skipt upp í fjögur tímabil:

  • Haustnámskeið

Námskeiðin eru á tímabilinu september - desember. Hægt er að sækja um á tímabilinu apríl - júní.

  • Vetrarnámskeið

Námskeiðin eru á tímabilinu desember - mars. Hægt er að sækja um á tímabilinu september - október.

  • Vornámskeið

Námskeiðin eru á tímabilinu mars - júní. Hægt er að sækja um á tímabilinu nóvember - desember.

  • Sumarnámskeið

Námskeiðin eru á tímabilinu júní - september. Hægt er að sækja um á tímabilinu febrúar - mars.

 

Hægt er að skoða þau námskeið sem eru í boði í hvert sinn hér:  NÁMSKEIÐ Í BOÐI

 

BEST námskeið eru opin öllum nemendum HÍ

 

Uppbygging námskeiða

Námskeiðin eru yfirleitt um 7 - 14 dagar og samanstanda af kennslu, menningu og skemmtun.

Kennsla

  • 20 - 24 kennslustundir
  • Fyrirlestrar frá sérfræðingum í viðfangsefni námskeiðsins
  • Heimsóknir í fyrirtæki, rannsóknasetur og annað sem tengist viðfangsefni námskeiðsins
  • Í lok námskeiðsins er próf eða verkefni til að meta árangur námskeiðsins
  • ~2 ECTS einingar (Ekki víst að HÍ meti þær, það þarf að semja um það sérstaklega við ykkar deild)

Menning

  • Ratleikur um miðbæ borgarinnar sem námskeiðið er haldið í.
  • Heimsóknir í söfn
  • Kynning á menningu og hefðum landsins í gegnum afþreyingu
  • Alþjóðlegt kvöld
  • Dagsferðir / Helgarferðir

Skemmtun

  • Þema partý á kvöldin
  • Pöbbarölt

Hvað er innifalið í skráningargjaldi (~7000 kr - 15 000 kr)?

  • Gisting - yfirleitt í heimavist, farfuglaheimilum eða svefnpokagistingu
  • Þrjár máltíðir á dag, þar af að minnsta kosti ein heit
  • Öll kennsla og kennsluefni
  • Öll afþreying innan dagskrá námskeiðsins