| BEST verkfræðikeppnir |
|
|
|
|
BEST verkfræðikeppnir eru atburðir þar sem lið nemenda nota tækni-, félags- og samskiptahæfileika sína ásamt ímyndunarafli til að finna lausn á verkfræðilegri þraut. Keppt er í tveimur greinum: Team DesignLiðin þurfa að búa til tæki til að leysa ákveðna þraut (svipað og hönnunarkeppnin) með takmarkaðan tíma og efnivið t.d. vélmenni sem getur teiknað, vél sem notar vatnsafl til að lyfta þyngd, kastali úr spaghetti sem þolir árás o.s.frv. Case StudyLiðin leysa tæknileg, stjórnunarleg eða skipulagsleg vandamál með takmarkaðan tíma og kynna svo lausnina með smá fyrirlestri t.d. setja sig í spor ríkisstjórnar lands eftir náttúruhamfararir og leysa þau vandamál sem því tengjast, hanna fljótandi hús og selja hugmyndina, betrumbæta framleiðslulínu, hanna markaðs herferð fyrir ákveðna vöru o.s.frv.
Uppbygging BEST verkfræðikeppna
Keppt er í fjögurra manna liðum.Þátttakendur fá ekkert að vita fyrirfram um verkefnið.Allur efniviður sem þarf/eða má hafa fyrir verkefnið er á staðnum.Lengd keppnarinnar getur verið allt frá 2 dögum til 2 klst, fer eftir eðli verkefnisins.
|
BEST verkfræðikeppnir


