Home BEST Reykjavík Viðburðir

Námskeið um jarðvarma á Íslandi 9 -17. mars 2010

Helstu samstarfaðilar

  • Háskóli Íslands, Verkfræðideild
  • Fyrirtæki: Ísor, Reykjavík Energy, HS Orka, GEORG
  • Verkfræðingafélagið

Dagskrá námskeiðsins

Þáttakendum séð fyrir gistingu og þrem máltíðum á dag af BEST Reykjavík. Gist var í Skátaheimili Skjöldunga í Laugardal.

Umfjöllunarefni kennslu var skipt í þrennt:

  • Geothermal Research
  • Geothermal Power Plants
  • Environmental Effects

Heimsókn í Hellisheiðavirkjun og Svartsengjavirkun. Vísindaferð í Mannvit.

Menningarlegi hlutinn

  • Opnunarhátíð í Ráðhúsi Reykjavíkur
  • Ratleikur um Reykjavíkurborg
  • Sund
  • Heimsókn í Ásatrúarfélagið
  • Pöbbarölt
  • Alþjóðlegt kvöld
  • Bláa lónið
  • Heimsókn í Nordic Sabre Center, skylmingarfélagið

Á háskóladaginn 2010 hélt BEST sína fyrstu VÁ BEST keppni (Verkfræðileg Áskorun BEST) í samstarfi við verkfræðideild HÍ. Áskorunin var að búa til þyrlu úr pappír sem var látinn fljúga á milli hæða á Háskólatorgi. Stig voru reiknuð út frá tíma í lofti og hversu nálægt skotmarki þær lentu. Það tóku um 80 manns þátt og 15 heppnir einstaklingar unnu bíókort frá NOVA.

7.september - 12.september 2009 héldum við okkar fyrsta isKIND sem var þjálfunarviðburður fyrir BEST Reykjavík. Við fengum BEST þjálfara til landsins, hana Tatiönu frá Rússlandi til að þjálfa okkur í mannauðstjórnun (HR), fundarstjórnun og nýliðun.

Á föstudeginum fórum við í réttir á suðurlandinu í leit að Hrafnkötlu Kind Þorðvarðardóttur (lukkudýrið okkar). Það rigndi stöðugt en við hlýjuðum okkur bara með bjór og Doddi kanslari hitti fyrrverandi landbúnaðarráðherra Guðna og fékk mynd með honum.

 

Námskeið um nýsköpun í matvælaiðnaði á Íslandi 10-18. mars 2009

Helstu samstarfaðilar

  • Háskóli Íslands, Matvæla- og næringarfræðideild
  • Fyrirtæki í matvælageiranum: Matís, Marel, Lýsi, Mjólkursamsalan, Ölgerðin og Kjarnafæði
  • Evrópa unga fólksins (e.Youth In Action)

Dagskrá námskeiðsins

Þáttakendum séð fyrir gistingu og þrem máltíðum á dag af BEST Reykjavík.

24 kennslustundir (fyrirlestrar, heimsóknir í fyrirtæki og verklegar æfingar)

  • Total food chain approach in food product development
  • Consumer psychology, food marketing
  • Consumer research and sensory analysis
  • Food engineering tools in the food chain
  • Process management and traceability
  • Food processing and quality management software

Fyrirlestrar hjá Háskóla Íslands og Matís
Heimsóknir í Lýsi, Matís og Marel

Menningarlegi hlutinn

  • Ratleikur um Þjóðminjasafni Íslands
  • Kokteilboð fyrir kennara og fulltrúa fyrirtækja
  • Ratleikur um Reykjavíkurborg
  • Alþjóðlegt kvöld
  • Pöbbarölt
  • Þriggja daga ferðalag austur á land
  • Gönguferðir
  • Gist í sumarbústöðum
  • Íslenskt menningarkvöld
  • Skógar, Skaftafell og Jökulsárlón
  • Gullfoss og Geysir

Í mars 2008 fóru meðlimir BEST Reykjavík í menningarskipti til Zagreb, Króatíu. BEST hópurinn í Zagreb tók vel á móti og sýndi okkur landið og menningu í heila viku sem var full af skemmtilegum uppákomum og ferðalögum yfir þvera og endilanga Króatíu. Í Júlí sama ár kom hópurinn frá Zagreb til landsins og fékk að kynnast landi og þjóð.

bePROUD  - Planning Running Observing Understanding Developing

30.sept - 7.okt 2007 hélt BEST Reykjavík þjálfunarbúðirnar bePROUD sem er leiðtoganámskeið á vegum BEST. Það komu 20 þátttakendur frá 15 löndum, 4 BEST þjálfarar og tveir aðstoðarskipuleggjendur.

Heimasíða : http://www.eeinarsson.com/beproud-IV/

Þjálfun átti sér í eftirfarandi atriðum:

  • Project Management Training
  • Leadership Ethics
  • General Leadership
  • Conflict Management Training
  • Motivation
  • Leadership Practice
  • General Communication and Feedback
  • Sharing Session about Local BEST Groups
  • Main BEST Knowledge Training
  • Values

Fyrstu helgina í júlí 2007 héldum við fyrsta NordiCAMP-ið. Við vorum í samstarfi við IAESTE og fórum við á Hallgeirsey þar sem félag verkfræðinema var með sína árlegu útilegu.

Námskeið um vatnsorku 18- 25. mars 2007

Dagskrá námskeiðsins

Þáttakendum séð fyrir gistingu og þrem máltíðum á dag af BEST Reykjavík.

24 kennslustundir (fyrirlestrar, heimsóknir í fyrirtæki og verklegar æfingar)

  • Environmental Impact Assessment
  • Engineering Hydroaulics
  • Soil Mechanics and Foundation
  • Seismic Analysis and Design of Rock Fill Dams
  • Hydro-Electric Power Plants
  • Mechanics in Hydro-Electric Power Plants

Heimsóknir í Landsnet, Nesjavelli og Toyota

 

Menningarlegi hlutinn

  • Dagsferð
  • Gullni hringurinn
  • Bláa lónið
  • Listasafn Íslands
  • Ráðhúsið
  • Sund

 

Sumarið 2006 komu til Íslands 15 ítalskir háskólanemar frá BEST í Napólí í heimsókn til BEST Reykjavík. Þessir hópar höfðu ákveðið að eiga svokölluð menningarskipti (e. Cultural Exchange) sem eru skipulagðar ferðir innan BEST. Í þessari fyrri heimsókn hýstum við Ítalina heima hjá okkur og í mars 2007 fóru 15 hressir BESTarar utan. Tilgangur þessara ferða er að kynnast ólíku landi á sem raunsæjastan hátt. Heimagisting og sá góði andi sem ríkir innan BEST gerir þetta vel mögulegt á þeim vikutíma sem heimsóknirnar standa yfir.

Þrátt fyrir að við höfðum kynnst Ítölunum nokkuð vel í heimsókn þeirra hérna var ýmislegt sem kom okkur á óvart. Flestir urðu nokkuð skelkaðir þegar sest var í bíl í fyrsta skipti og ljós kom að umferðarreglur í Napólí væru almennt hugsaðar sem leiðbeiningar frekar en einhver lög sem skylt væri að fara eftir. Þegar leið á vikuna kom þó í ljós að öll óreiðan virkar furðu vel í umferðinni hjá Napólí búum.

Meðal þess sem var á dagskrá var heimsókn á Þjóðminjasafn i Napóli, konungshöllin í Napólí var skoðuð ásamt því að farið var í sýningarferð um fyrstu sjálfvirku silkiverksmiðju í heimi. Skipst var á þjóðlegum mat og drykk á International Evening í hlíðum Vesúvíusar og 2000 ára gömul áveitugöng voru rannsökuð ásamt fjölda annara merkilegra mannvirkja sem tengjast sögu staðarins.

Þetta verkefni hefur hlotið styrk frá Evrópu Unga Fólksins og vill BEST Reykjavík á Íslandi koma á framfæri þökkum fyrir veittan stuðning.

Hvað ætli BESTarar úr Háskóla Íslands hafi nú gert af sér í mars? Jú, þeir dunduðu sér í skólanum, skruppu í stöku vísindaferð og sinntu hverstagslegu amstri dagsins, en umfram allt helgaði stór hópur Víðfara sig því að skipuleggja fjögurra daga fund fyrir staðværa BEST- hópa Norðurlandanna. En hvaða svæði? Þannig er nefnilega mál með vexti að BEST hefur skipt Evrópu upp í 9 svæði til að auðvelda starfsemi samtakanna. Þannig er Ísland á sama svæði og hin Norðurlöndin. Einu sinni á ári er haldinn aðalfundur BEST og fyrir hann hittast aðilar hvers svæðis og stinga saman nefjum. Aðal markmið fundarins er að undirbúa þátttakendur fyrir aðalfundinn sem yfirleitt er haldinn í apríl, en einnig fer þar fram kynning á BEST og þjálfun fyrir nýja meðlimi.

Það er ekki beinlínis hlaupið að því að halda fund að þessu tagi, enda fundargestir 45 talsins og í mörg horn er að líta. Að morgni fimmtudagsins 30. mars óku greinarhöfundur og turtildúfurnar Sigurður og Hrönn um höfuðborgina þvera og endilanga í stórinnkaupum á mat sem enduðu þannig að sjö manna trukkurinn sem ferðast var á var orðinn stútfullur og kominn hressilega yfir leyfilega öxulþyngd. Minna mátti nú ekki vera, því að maturinn hvarf af borðum jafnharðan og hann var lagður þar á. Var það eindóma álit þátttakenda að matseljan Hrönn hafi verið fyrirmyndakokkur, og fékk hún reyndar bónorð eða tvö á miðju eldhúsgólfinu. Fólksflutningar voru einnig mikill höfuðverkur enda kom fólkið til landsins á um það bil 18 mismunandi tímum. Gistiaðstaða er ákaflega kostnaðarsöm í Reykjavík og erfitt er að finna stað fyrir þetta stóran og, oft á tíðum, hávaðasaman hóp Því var brugðið á það ráð að halda atburðinn í skátaheimilinu við Úlfljótsvatn. Þá nýttum við okkur það, að aðalhetja og skipuleggjandi atburðarins, Magnús, er með meirapróf, og reyndar kjarnkonan Erna líka, en hún er félagi í Víðfara. Þau fengu forláta rútu að láni og óku köppunum á henni til og frá Úlfljótsvatni en einnig fengum við tvær topp bifreiðar að láni frá Toyota og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.

Á atburðum BEST er fyrsta kvöldinu yfirleitt varið í að kynnast hvert öðru með ýmsum nafnaleikjum og öðrum skemmtilegum uppákomum. Strax klukkan hálf níu morguninn eftir var dagskráin hafin að fullu. Eftir sællegan morgunmat ræddum við um það í um það bil klukkustund hvaða væntingar við hefðum til atburðarins. Þetta hljómar eins og langur tími, en er algjörlega nauðsynlegt til að gera sér grein fyrir því hvað framundan er og til þess að hægt sé að nýta tímann sem best. Á loka degi var svo farið yfir stöðuna og rætt um hvort þessum markmiðum hefði verið náð.

Seinna um daginn var þjálfun í fjármögnun og útskýringar á sérstöku vefsvæði sem sérhver BESTari hefur á netinu. Eftir kennslu á aðferðarfræði við samningaviðræður var okkur úthlutað verkefni. Þátttakendum var skipt í þrjá hópa, þar sem hverjum hóp var svo aftur skipt í tvo hópa. Sett var upp skema fyrir hvern af hópunum þremur þar sem selja átti bíl; annar hópurinn átti að selja bílinn en hinn að kaupa hann. Þetta er gott dæmi um hversu gagnvirk og skemmtileg kennslan í BEST er, reynt er að sýna fram á hagnýtingu. Þá var einnig rætt um ýmsa starfsemi BEST til að fræða nýrri meðlimi á fundinum, en að öðru leiti fór tíminn í undirbúning fyrir aðalfund BEST.

Þrátt fyrir mikið annríki við skipulagningu gáfum við okkur nú tíma til að sýna nýju vinunum landið okkar. Við fórum til að mynda á Þingvelli, Gullfoss og Geysi, í Bláa lónið og á bak íslenska hestsins svo eitthvað sé nefnt. Greinarhöfundur á erfitt með að segja það sem hann vill segja án þess að hljóma yfirmáta grobbinn og hreykinn, svo hann segir það bara beint út: Þessi fyrsti atburður þessara nýstofnuðu orkuríku samtaka gekk eins og í sögu og olli undrun og aðdáun allra þeirra sem hann sóttu. Einn reyndasti meðlimur samtakana, sem var jafnframt þjálfari á ráðstefnunni sagði greinarhöfundi að mjög erfitt yrði fyrir næsta hóp að halda þennan fund að ári vegna þess hve erfitt væri að skapa sömu stemningu aftur. Við lærðum gríðarlega mikið um skipulagningu, mótshald og hvernig samtök BEST eru. Við lærðum líka það að ungir raunvísinda- og verkfræðinemar á Norðurlöndunum eru með eindæmum jákvæðir, dugmiklir, hugmyndaríkir, hressir og skemmtilegir.

Í byrjun síðasta vetrar kom upp sú hugmynd að halda sumarnámskeið á Íslandi eins og tíðkast hjá aðildarhópum BEST. Slíkt námskeið er ekki lítil skuldbinding því þegar slíkur kúrs er haldinn þarf að hýsa 25 manns í 2 vikur, útvega þeim fæði, finna fyrirlesara sem geta haldið fyrirlestra og skipuleggja alla dagskrá fyrirfram. Að auki þarf aðildarhópurinn sem heldur slíkt námskeið að borga allan kostnað sem af námskeiðinu hlýst því þátttakendur eiga ekki að þurfa að borga krónu fyrir utan ferðakostnað á staðinn. Námskeiðið er opið öllum nemendum aðildarskóla BEST samtakanna.

Það var því með heldur litlar væntingar sem meðlimir Víðfara hófu söfnun fyrir námskeiði í dimmasta skammdeginu í janúar sl. En viti menn, söfnunin gekk vonum framar og fyrr en varði var skipulagning og undirbúningur sumarnámskeiðs kominn á fullt skrið. Í samráði við Hannes Jónsson, prófessor í efnafræði, var ákveðið að samræma efni sumarnámskeiðsins efni námskeiðs sem hann hugðist halda um vetni og Orkusamfélagið Ísland. Námskeiðið var það haldið dagana 20. júní til 4. júlí og bar á ensku heitið "Playing with power - Energy society of Iceland: Hydrogen and geothermal energy". Á námskeiðinu var fjallað um hlutverk vetnisins í heimi þar sem jarðefnaeldsneyti fer þverrandi, hvar Ísland stendur hvað varðar vetnisvæðinguna og loks kynntu nokkur fyrirtæki sem eru í fararbroddi í þessum geira starfsemi sína fyrir þátttakendum námskeiðsins.

Þó að fyrirlestrarnir hafi verið metnaðarfullir og áhugaverðir þá er markmiðið með BEST-námskeiðum ekki síður að það sé skemmtileg upplifun fyrir þátttakendur því umfangsmikil tómstundadagskrá fyllti upp í hverja lausa mínútu. Farið var með þátttakendur í Bláa Lónið, að Gullfossi og Geysi og skipulögð var tjaldferð þar sem útlendingarnir voru kynntir fyrir ekta íslenskri tjaldútilegu, farið var í gönguferðir og þess á milli grillað og sungið. Loks voru helstu kennileiti og söfn Reykjavíkur heimsótt og að sjálfsögðu fengu þátttakendur einnig að kynnast hinu margrómaða íslenska næturlífi í miðborg Reykjavíkur.

Á meðan á námskeiðinu stóð gistu þátttakendur í Hlíðardalsskóla við Þorlákshöfn og einnig nokkrir úr hópi Víðfara sem sáu um skipulagningu, matargerð og allt annað sem gera þurfti. Gististaðurinn var heldur óvenjulegur en að sama skapi einstaklega skemmtilegur því umgjörð hans er harðgerð náttúra Reykjaness og háhitasvæðið í Krýsuvík er skammt undan fyrir þá sem vilja fá eggin sín gufusoðin með morgunmatnum. Einnig hafði hópurinn afnot af sundlaug sem stendur við skólann á meðan dvalið var þar. Vegna fjarlægðar frá Háskóla Íslands, þar sem flestir fyrirlestrarnir fóru fram, var hópurinn ferjaður milli Reykjavíkur og Þorlákshafnar á hverjum degi, en um það sáu meiraprófsbílstjórar Víðfara, Erna Knútsdóttir og Magnús Már Einarsson, sem eru öllum hnútum kunn á þessu svæði og auk þess einstaklega naskir leiðsögumenn.

Námskeiðinu var ætlað að fræða þá sem það sóttu um efni sem er nýtt af nálinni og þróunin framundan er spennandi og óráðin hvað varðar framtíð vetnisins. Meðlimir Víðfara lögðu sig alla fram við að gera námskeiðið eftirminnilegt fyrir alla sem komu að því og má með sanni segja að bæði þátttakendur og skipuleggjendur hafi átt hér tvær ógleymanlegar vikur á bjartasta árstímanum á hjara veraldar í landi elds, ísa og vetnis. Hver þarf svo sem að sofa þegar það er bjart allan sólarhringinn?