Atburðir erlendis
Árstíðabundin Námskeið BEST
Allir nemendur Háskóla Íslands geta sótt um að komast á námskeið BEST en fjórir umsóknarfrestar eru á ári hverju. Lista yfir námskeið í boði hverju sinni má nálgast hérna.
Búið er að loka fyrir umsóknir fyrir vorkúrsa en þann 21. febrúar 2010 kl 22:00 að íslenskum tíma verður birtur listi yfir sumarnámskeið og hægt verður að sækja um til 11. apríl.
Búið er að loka fyrir umsóknir fyrir vorkúrsa en þann 21. febrúar 2010 kl 22:00 að íslenskum tíma verður birtur listi yfir sumarnámskeið og hægt verður að sækja um til 11. apríl.
Umsóknarferlið er sáraeinfalt.
- Farðu hingað og skoðaðu námskeiðin sem eru í boði og finndu það námskeið sem þig langar mest á. Hafðu til hliðsjónar staðsetningu og tímasetningu námskeiðsins.
Þú mátt sækja um 3 námskeið sem tilheyra "BEST Courses" og/eða "Engineering Competitions", og aukalega 3 námskeið sem flokkast undir "BEST Leisure Events".
- Veldu [Apply Now] og búðu til aðgang að umsóknarkerfinu.
- Hafðu samband við BEST Reykjavík til að láta virkja aðganginn þinn(Við þurfum m.a. að staðfesta að þú sért nemandi við HÍ)
- Skrifaðu hvatningarbréf (e. Motivation Letter). Hvort þú ert samþykkt(ur) byggist að mestu leiti á þessu bréfi.
- Vertu skapandi og notaðu ímyndunaraflið
- Afhverju viltu fara á þetta tiltekna námskeið?
- Afhverju ert þú sá rétti/sú rétta?
- Vertu þú sjálf(ur).
- Notaðu rétta uppsetningu og orðalag. Bréfið verður lesið af nemendum líkt og þér, taktu það með í myndina.
- Sendu inn umsóknina og bíddu eftir niðurstöðunum! :) Þú getur fylgst með úrslitunum sjálf(ur) með því að logga þig inn á síðunni á sama hátt og þegar þú sækir um.
- Sértu valinn sem þáttakandi mun fulltrúi BEST á Íslandi hafa samband við þig til að staðfesta þátttöku þína.
