BEST atburðir
Aðal starf BEST er að bjóða námskeið og atburði sem eru opnir öllum nemendum þeirra skóla þar sem BEST hópur er staðsettur. Eins og er eru þetta hátt í milljón nemendur um alla evrópu.
BEST hóparnir skipuleggja atburði allt árið um kring og eru þeir yfirleitt um 1-2 vikna langir. Þar hittast á milli 20 og 30 nemendur og læra um efni viðkomandi kúrs ásamt því að skemmta sér og kynnast fólki með svipuð áhugamál og á svipuðu reiki og það sjálft. Atburðirnir skiptast í BEST námskeið, BEST atburður tengdur menntun, BEST verkfræði keppni og BEST afslöppunar ferðir.
Kostnaðurinn við að fara á BEST atburð er tiltölulega lítill þar sem þátttakandi þarf einungis að borga flugfarið á staðinn og eftir það fær hann fría gistingu og 3 máltíðir á dag (allavega eina heita). Stundum, enn þó mjög sjaldan, er smá gjald innheimt af þátttakendum enn það er þó aldrei meira enn 45 evrur. Einnig þurfa allir sem fara á BEST atburð að borga staðfestingargjald til BEST hópsins í sínum skóla sem þeir svo fá til baka eftir að hafa lokið þátttöku.
Hér að neðan geturðu lesið þér til um þessa atburði. Ef þú hefur áhuga á að skoða hvaða atburðir eru á döfinni klikkaðu hérna.
BEST námskeið
Á BEST námskeiðum læra þátttakendur um ákveðið efni sem skipuleggjendur í samstarfi við skólann og hugsanlega fyrirtæki ákveða. Farið er í heimsókn í fyrirtæki, rannsóknarsetur og annað sem gæti tengst viðkomandi efni. Efni námskeiðanna tengjast yfirleitt mismunandi sviðum tækniheimsins, efnahagsmálum, markaðsfræðum og stjórnun. Í lok námskeiðs taka þátttakendur próf sem er hannað til að sjá árangur námskeiðsins og til að meta velgengni þátttakendanna. Margir háskólar eru farnir að gefa nemendur einingar fyrir námskeiðin (ECTS einingar), þó að það sé ekki tilfellið á Íslandi – ennþá.
BEST atburður tengur menntun
Þessir BEST atburðir eru samræðunámskeið sem eru yfirleitt í um 6 daga. Þarna koma saman verkfræðinemendur og prófessorar hvaðanæva úr evrópu með það markmið að meta verkfræðimenntun í evrópu og finna nýjar leiðir til að betrumbæta hana.
BEST verkfræðikeppnir
Verkfræðikeppnirnar eru atburðir þar sem lið nemenda nota tækni-, félags-, og samskiptahæfileika sína til að keppa í mismunandi flokkum eins og hönnun, lausn raunverulegra verkefna, og kappræðu og samningaviðræðum.
BEST afslöppunarferðir
BEST skipuleggur líka atburði þar sem skemmtun er aðal lærdómurinn. Dæmi um ferðir eru skíðaferðir, siglingar, jaðaríþróttir o.s.fr. Kostnaðurinn við þessar ferðir er ávallt hærri enn við hina atburðina.