08. February 2010
Fréttir
Listinn yfir Vornámskeið BEST 2010 hefur verið birtur og umsóknafresturinn nálgast óðfluga! Frestur er til 13. desember. Kíkið á listann til að sjá hvað er í boði og á atburði erlendis til að fá leiðbeiningar um hvernig á að sækja um.

ATH Allir nemendur Háskóla Íslands geta sótt um þó markhópur BEST sé Verkfræði- og Raunvísindanemar. Ef einhverjar spurningar vakna sendið þá póst á reykjavik@BEST.eu.org

Eins og glöggir munu taka eftir erum við í BEST Reykjavík með einn af þeim kúrsum sem boðið er uppá í vor en þó svo námsmenn við Hí geti ekki sótt um að vera formlegir þátttakendur á því námskeiði þá erum við alltaf að leita að góðu fólki sem langar að taka þátt í starfinu með okkur.

Ef þig langar að upplifa stemminguna á BEST námskeiði en hefur kannski ekki tök á að ferðast settu þig þá í samband við Berglindi, kynningarfulltrúan okkar í gegnum tölvupóst á berglind@BESTreykjavik.com eða síma 866-3650 og segðu "Mig langar að vera með! :D"

Hér að lokum má sjá kynningarmyndband vorsins:

23. November 2009 kl. 12:08 | Stjórnin
Vikuna 28. september til 2. október verðum við í BEST Reykjavík að kynna starfsemina okkar á Háskólasvæðinu.

Kynningar á göngum:

Á mánudeginum og fimmtudeginum verðum við með borð í andyri VR2 með bæklinga, smákökur og létt spjall við alvöru BESTara milli kl 10 og 13.

Opið Hús:

Fyrir þá sem vilja meiri upplýsingar og aðstoð við umsókn á kúrs geta komið á opið hús sem er þriðjudag til fimmtudags kl 13-17. BESTarar verða á staðnum og taka vel á móti ykkur.

Opinn Fundur:

Á fimmtudeginum kl 17 verður svo opinn fundur BEST Reykjavík þar sem öllum áhugasömum um hópinn er velkomið að mæta og sjá með eigin augum hvað fer fram og fá enn betri innsýn inn í félagið.

28. September 2009 kl. 09:00 | Stjórnin
Það fer að styttast í að tilkynntir verða BEST vetrarkúrsar en þeir verða birtir hér þann 24. september kl 23:00 CEST.

Vetarkúrsarnir eiga sér stað á tímabilinu 1. desember 2009 - 8. mars 2010 en fresturinn til að sækja um þá verður 25. október 2009.

Þegar kúrsarnir verða tilkynntir þá setjum við nánari upplýsingar um þá hér á heimasíðuna ásamt því að bjóða uppá aðstoð við gerð umsókna ofl.

Fylgist því vel með á síðunni :)

18. September 2009 kl. 13:03 | Stjórnin
Nú erum við loks öll byrjuð aftur í skólanum eftir gott sumar og starfið hérna heima komið á fullt skrið. Það er margt spennandi framundan á komandi ári og fjölbreytt verkefni verða í gangi í allan vetur fyrir þá sem vilja taka þátt.

Við byrjuðum haustið á að styrkja BEST hópinn hérna heima með námskeiðum í mannauðsstjórnun og fundarhaldi með hjálp BEST-þjálfara frá Rússlandi. Til að þjappa hópnum enn betur saman skemmtum við okkur hressilega á íslenskan máta með því að skella okkur í Réttir og enduðum kvöldið á alvöru gítarpartýi þar sem var sungið fram á nótt :)

18. September 2009 kl. 12:22 | Stjórnin
Frá og með 9. nóvember síðastliðnum var opnað fyrir umsóknir á Vorkúrsa BEST sem eru á tímabilinu frá 1. mars til 7. júní 2009. BEST-kúrsar eru tilvalið tækifæri til að ferðast og upplifa e-ð alveg nýtt á sem ódýrastan máta sérstaklega nú í kreppunni.

Ný tillaga var samþykkt á forsetafundinum í Bucharest og nú þurfa umsækjendur frá Íslandi ekki að borga þetta svokallaða "fee" sem er á sumum kúrsunum þannig að nú er þetta enn ódýrara fyrir ykkur. Umsóknafrestur rennur út 14. desember. Til að sjá leiðbeiningar um hvernig á að sækja um farið hér.

Ef þið hafði spurningar sendið þá línu á BEST@BESTreykjavik.com og við svörum ykkur um hæl :)

11. November 2008 kl. 17:46 | Stjórnin
Listinn yfir Vetrarnámskeið BEST er kominn. Umsóknarfrestur er til 22. október. Kíkið á atburði erlendis til að fá leiðbeiningar. Allir nemendur Háskóla Íslands geta sótt um. Ef einhverjar spurningar vakna sendið þá póst á reykjavik@BEST.eu.org

05. October 2008 kl. 19:55 | Stjórnin
Tilkynntur verður listi vetrarkúrsa BEST á mánudaginn næsta, þann 29. september kl 21:00 og verða þar í boði kúrsar sem eru opnir öllum nemendum HÍ. Hægt verður að sækja um frá því að þeir eru tilkynntir fram til 22. október kl 21:00. Í boði verða kúrsar í tæknitengdu efni, tómstundakúrs og verkfræðikeppnir í hinum ýmsu Evrópulöndum á tímabilinu 1. desember til 7.mars.

Hér mun listinn birtast.

Ef þið hafið einhverjar spurningar endilega sendið línu á reykjavik@BEST.eu.org
25. September 2008 kl. 10:16 | Stjórnin
Byrjað er að taka við umsóknum á BEST sumarnámskeiðin. Námskeiðin eru frábær leið til að læra eitthvað nýtt, kynnast nýju fólki hvaðanæva úr Evrópu og ferðast til nýrra og skemmtilegra staða útum alla Evrópu. Ekki láta þetta tækifæri renna þér úr greipum! Hægt er að sækja um námskeiðin með því að fara á www.bestreykjavik.com/courses
02. April 2008 kl. 15:35 | Elís Mar Einarsson

Opinn fundur BEST
Á morgun miðvikudag verður haldinn opinn fundur þar sem allir eru velkomnir. Á fundinum verður rætt lítilega um BEST og starfsemina á komandi misserum sem og aðalfund félagsins sem haldinn verður á laugardaginn n.k. Einnig verður tekið við skráningum í félagið og útskýrt hvaða möguleikar og tækifæri opnast meðlimum BEST. Fundurinn hefst kl 20:00 og verður haldinn í stofu 257 í VR-II


Aðalfundur BEST á Íslandi
Laugardaginn 22. september verður aðalfundur BEST á Íslandi haldinn á veitingarstaðnum Horninu. Hefðbundin aðalfundarstörf hefjast klukkan 20:00, en boðið er upp á hlaðborð fyrir þá sem það vilja, á milli 18:00 og 20:00 ásamt einum drykk á 2.750,- kr. Hægt er að skrá sig á matinn í netfanginu BEST@BESTreykjavik.com til miðnættis, fimmtudagin 20. september.

Kosningarétt og framboðsrétt til stjórnar á aðalfundinum hafa allir meðlimir BEST sem hafa greitt félagsgjald kr. 3.000,- fyrir komandi starfsár. Framboðsfrestur til stjórnar er til klukkan 23:59 fimmtudaginn 20. september.

Nánar verður sagt frá aðalfundinum á opna fundinum á morgun.

Allar nánari upplýsingar má fá með því að senda mail á BEST@BESTreykjavik.com.

Vonumst til að sjá sem flesta.

Stjórnin
19. September 2007 kl. 17:46 | Stjórnin
Það er mikið að gerast hjá BEST á næstu vikum og mánuðum, eins og alltaf. Hérna að neðan má sjá brot af því BESTa.

    Dagana 13. - 17. september verður stjórnarþjálfun í Kaupmannahöfn fyrir þá sem hafa áhuga á að bjóða sig fram í stjórn á aðalfundinum. Frestur til að skrá sig er 5. september.

    Laugardaginn 22. september er aðalfundur félagsins þar sem kosið verður í nýja stjórn og farið verður yfir síðasta BEST ár. Frestur til að bjóða sig fram í stjórn er fimtudagurinn 20. september.

    Dagana 30. september - 7. október höldum við á Íslandi þjálfunarbúðir í leiðtogaþjálfun sem kallast bePROUD. Tökum við á móti 26 Evrópubúum frá 15 löndum.

    Dagana 26. - 29. október verður svæðisfundur Norrænu BEST hópanna haldinn í Þrándheimi í Noregi. Hóparnir eru 10, og er þessi fundur undirbúningur fyrir forsetafund BEST.

    Dagana 5. - 11. nóvember verður forsetafundur BEST, sem er annar af tveimur aðalfundum BEST. Þar hittast forsetar allra BEST hópanna, alþjóðastjórnin og allar þær nefndir sem starfa í BEST.

Eins og þið sjáið er nóg að gera og spennandi hlutir í aðsigi. Ef þið hafið einhverjar spurningar eða áhuga á að fara í eitthvað af þessum ferðum, eða hjálpa til við þjálfunarnámskeiðið hérna heima, ekki hika við að hafa samband við okkur með tölvupósti (reykjavik@BEST.eu.org) eða nappa í okkur á göngum skólans.
30. August 2007 kl. 11:19 | Elís Mar Einarsson
BEST á Íslandi skipuleggur nú þjálfunarbúðir (e. TrainShop) í leiðtogaþjálfun sem kallast bePROUD. Þær verða haldnar dagana 30. september til 7. október og munum við taka á móti 20 þáttakendum, 4 þjálfurum og 2 aðstoðar skipuleggjendum. Krakkarnir koma frá 15 löndum Evrópu.
25. August 2007 kl. 18:53 | Elís Mar Einarsson
Frestur til að sækja um á haustnámskeið BEST rennur út 1. júlí n.k. og því fer hver að verða síðastur til að skrá sig og framlengja sumrinu inn í haustið.

Til að sjá hvaða námskeið eru í boði veljið 'Atburðir Erlendis' hér til hliðar.
21. June 2007 kl. 02:48 | Elís Mar Einarsson
Á síðasta föstudaginn, 20. apríl 2007, varð BEST á Íslandi fullgildur meðlimur BEST samtakanna. Þetta er stór dagur fyrir okkur og eitthvað sem við höfum unnið að, hörðum höndum síðustu tvö ár. Hér fyrir neðan má sjá fréttatilkynningu sem send var frá okkur.


BEST á Íslandi fær fulla aðild að evrópsku móðursamtökunum

Á aðalfundi evrópsku BEST samtakanna í Frakklandi í dag var kosið um hvort aðildarfélag BEST í Háskóla Íslands fengi fulla aðild að samtökunum. Á aðalfundinum eiga kosningarétt tveir fulltrúar frá 29 evrópulöndum auk alþjóðstjórnar BEST. Tillaga þess efnis um að Ísland fengi fulla aðild að samtökunum var borin upp af BEST samtökum tækniháskólans í Trondheim í Noregi og var samþykkt með 62 atkvæðum gegn einu, tveir sátu hjá. Með þessu lýkur tæplega tveggja ára undirbúningi að þessum tímamótaafanga í sögu félagsins á Íslandi.

Umsóknarferli BEST er töluvert flókið og eru miklar kröfur gerðar til aðildarfélaga og eru einungis örfá ný aðildarfélög í evrópskum háskólum sem hljóta inngöngu ár hvert. Sumarið 2005 stofnaði hópur verkfræði og raunvísindanema félag innan Háskóla Íslands og hóf undirbúningsvinnu við aðildarumsókn að evrópsku BEST samtökunum. Í lok sumars lauk hópurinn viðamikilli umsóknarbeiðni sem innihélt skýrslu um starfsemi Háskólans, markmið aðildarfélagsins og framtíðarsýn upp á tæplega 50 blaðsíður. Um miðjan nóvember sama ár samþykkti forsendafundur BEST umsóknarbeiðnina og fékk íslenska félagið því meðlimsstöðuna áhorfshópur (e. Observer group). Í kjölfarið hóf félagið á Íslandi formlega starfsemi sína og hefur vegur félagsins verið upp á við frá þeim tíma. Meðal annars hefur félagið staðið fyrir tveimur alþjóðlegum námskeiðum, annars vegar um vetnisframleiðslu og hins vegar um vatnsaflsvirkjanir sem nokkur hundruð evrópskir nemendur hafa sótt um að taka þátt í. Á aðalfundi BEST í Belgíu árið 2006 var samþykkt að íslenska aðildarfélagið yrði uppfært í umsóknarferlinu. Nú ári seinna á aðalfundi félagsins hlaut félagið fulla aðild, að uppfylltum ströngum skilyrðum.

BEST (Board of European Students of Technology) eru evrópsk samtök háskólanema í tæknigreinum. Alls eru 70 evrópskir háskólar í 30 löndum aðilar að samtökunum og ná þau til um 500.000 nemenda í Evrópu. Megintilgangur BEST er að bjóða nemendum aðildarháskólanna upp á aukreitis menntun í formi stuttra námskeiða ásamt því að gefa nemendum tækifæri á að kynnast menningu og tungumálum annarra þjóða.
22. April 2007 kl. 23:07 | Stjórnin

Síðastliðið sumar komu til Íslands 15 ítalskir háskólanemar frá BEST í Napólí í heimsókn til Víðfara. Þessir hópar höfðu ákveðið að eiga svokölluð menningarskipti (e. Cultural Exchange) sem eru skipulagðar ferðir innan BEST. Í þessari fyrri heimsókn hýstum við Ítalina heima hjá okkur og í mars síðastliðnum fóru 15 hressir BESTarar utan. Tilgangur þessara ferða er að kynnast ólíku landi á sem raunsæjastan hátt. Heimagisting og sá góði andi sem ríkir innan BEST gerir þetta vel mögulegt á þeim vikutíma sem heimsóknirnar standa yfir.

Þrátt fyrir að við höfðum kynnst Ítölunum nokkuð vel í heimsókn þeirra hérna var ýmislegt sem kom okkur á óvart. Flestir urðu nokkuð skelkaðir þegar sest var í bíl í fyrsta skipti og ljós kom að umferðarreglur í Napólí væru almennt hugsaðar sem leiðbeiningar frekar en einhver lög sem skylt væri að fara eftir. Þegar leið á vikuna kom þó í ljós að öll óreiðan virkar furðu vel í umferðinni hjá Napólí búum.

Meðal þess sem var á dagskrá var heimsókn á Þjóðminjasafn i Napóli, konungshöllin í Napólí var skoðuð ásamt því að farið var í sýningarferð um fyrstu sjálfvirku silkiverksmiðju í heimi. Skipst var á þjóðlegum mat og drykk á International Evening í hlíðum Vesúvíusar og 2000 ára gömul áveitugöng voru rannsökuð ásamt fjölda annara merkilegra mannvirkja sem tengjast sögu staðarins.

Framundan er myndakvöld þar sem utanfarar munu sýna og segja öðrum BESTurum frá þessari skemmtilegu reynslu.

Þetta verkefni hefur hlotið styrk frá Evrópu Unga Fólksins og vill Víðfari-BEST á Íslandi koma á framfæri þökkum fyrir veittan stuðning.

02. April 2007 kl. 15:50 | Stjórnin

Kæru samnemendur

Hvað eiga verkfræðinemar á Íslandi, Belgíu og Rúmeníu sameiginlegt? Hvað er líkt með lyfjafræðingum í Reykjavík og náttúrufræðingum frá Mílan? Það sem við eigum öll sameiginlegt er metnaður í námi, löngunin til að skoða heiminn, æskan til að sleppa okkur í taumlausri gleði og dansi og þörfin á að kynnast nýju fólki og menningu.

Sumarnámskeið BEST er hin fullkomna leið til að uppfylla allar þessar grunnþarfir.

Hvernig geturðu sagt nei við öllu þessu... og hvað ef ég segði þér að þetta er þér algjörlega að kostnaðarlaus. Þú þarft einungis að kaupa flugfarið!

Gríptu gæsina meðan hún gefst og taktu þátt í lífreynslu sem þú munt aldrei gleyma. Sæktu um fyrir 1. apríl.

 

www.best.eu .org   og   www.bestreykjavik.com 

28. March 2007 kl. 12:56 | Stjórnin

HVAÐ EIGUM VIÐ AÐ GERA VIÐ CE STYRKINN?
og fleira...

29. January 2007 kl. 20:53 | Stjórnin
Klikkið til að lesa meira!!!
03. December 2006 kl. 21:04 | Elís Mar Einarsson
Hverjir vilja leggja hönd á plóg í skipulagsbaráttunni fyrir vorkúrsinn ?
Nú í dag sendi Víðfari til alþjóðastjórnar BEST umsókn þess efnis að fá að halda Spring Course (SpC) eða vornámskeið. Ef allt gengur að óskum verður námskeiðið haldið dagana 18. – 25. mars. Heiti námskeiðsins er “Drink Your Energy – From Water to Electricity”. Víðfari mun þá bjóða til sín um 25 nemendum frá Evrópu til landsins og fræða þá um vatnsaflsvirkjanir og sýna þeim hvernig við Íslendingar framleiðum okkar orku.
Nánar upplýsingar eru á heimasíðu námskeiðsins
03. December 2006 kl. 00:02 | Stjórnin
Dagskrá fundar:
1. Spring Course
2. Önnur mál
29. November 2006 kl. 20:41 | Elís Mar Einarsson
Dagskrá fundar:
1. Kynning á Forsetafundi BEST í Belgíu
2. Dagskrá vetrarins
3. Heimasíða
4. Teymi
5. Önnur mál
6. fundi slitið
29. November 2006 kl. 20:30 | Elís Mar Einarsson
Jæja, velkomin á fyrstu og BESTu heimasíðu BEST á Íslandi!!

Síðan er ennþá í vinnslu og enn vantar flest allt efni á hana, en það batnar strax eftir próf. Ef þið finnið einhverjar villur eða annað sem betur mætti fara, ekki hika við að senda tölvupóst með því að velja 'hafa samband' hér til hliðar.

Gangi ykkur vel í prófunum!

Elís
Vefstjóri BEST Reykjavík
28. November 2006 kl. 20:00 | Elís Mar Einarsson
2009 © Víðfari - BEST á Íslandi