BEST, ‘Board of Europen Students of Technology’ eru ópólitísk samtök, sem stofnuð voru í Berlin í mars 1989. Í dag samanstöndum við af 82 BEST hópum í jafn mörgum háskólum, í næstum 30 löndum Evrópu, og með yfir 2000 meðlimi.
Með allskyns námskeiðum, sem eru allt frá því að vera mjög lærdómsrík og yfir í að kynnast menningu og landi viðkomandi BEST hóps, veitum við nemendum ómetanleg tækifæri til að hittast og læra af hvort öðru. Þannig stuðlum við að bættir menntun, auknum samskiptum og aukinni menningarvitund evrópskra stúdenta. Enda eru samtökin rekin af stúdentum, fyrir stúdenta, og eitt af okkar slagorðum ‘að kynna Evrópu fyrir Evrópubúum’.
Okkar aðal markmið er að færa nemendur, fyrirtæki og háskóla saman, og þannig mynda sterkt tengslanet sem nær í gegnum alla Evrópu.
BEST er skilgreint í Identity statement, sem samanstendur af sýn, markmiðum og gildum. Sýn BEST er að fagna fjölbreytni, sem þýðir að við viljum að fólk skilji og virði mismunandi menningarheima og samfélög. Markmið okkar er að bæta og þroska nemendur. Þetta gerum við með því að aðstoða þá í að öðlast alþjóðarvitund og veita þeim tækifæri til að bæta sjálfan sig. Okkar gildi eru skemmtun, sveigjanleiki, lærdómur, framfarir, og vinátta.
BEST er stjórnað af alþjóðastjórninni sem er kosin á árlegum aðalfundi BEST. Í stjórn sitja 6 manns; forseti, ritari, gjaldkeri, varaforseti fyrir ytri þjónustur, varaforseti fyrir innri aðstoð og varaforseti fyrir aðstoð við staðværa hópa.
Í BEST eru ýmsar nefndir sem sjá um að halda utan um starfsemi BEST. Þetta eru nefnd almannatengsla, nefnd ytri atburða, nefnd menntunar, nefnd innri þjálfunar, nefnd upplýsingatækninnar og nefnd fyrirtækjatengsla.
Til að auðvelda ákvarðanatöku og þjálfun stúdenta í svo stórum samtökum eru allskyns innri atburðir sem einungis eru ætlaðir meðlimum í samtökunum. Þetta eru vinnubúðir, þjálfunarbúðir, Jamboree, svæðisfundir og menningarskipti. Einnig eru haldnir tveir aðalfundir á árinu, aðalfundur og forsetafundur, þar sem allar helstu ákvarðanir varðandi félagið eru teknar.
